RLTK3RK04 - Raflangateikning 2

Í áfanganum er gerð raflagnateikninga í AutoCAD fyrir neysluveitur allt að 200 A. Nemendur vinna með táknasafn, teiknireglur, staðla og skila lágspennulögnum, smáspennulögnum, einlínumynd, sniðmynd, afstöðumynd og magnmælingum.

Lögð er áhersla á nákvæm vinnubrögð, aflútreikninga, samtímanotkun og samþættingu teikninga og efnisvals.

Forkröfur: RLTK2RK04

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • Íslenskum staðali um raflagnateikningar fyrir neysluveitur allt að 200 A.
  • Heitum og hugtökum raflagnateikninga
  • Magntöku og kostnaðartöku raflagna
  • Helstu teikniforritum
  • Öllum almennum og sértækum teiknitáknum
  • Teiknireglurum og staðalákvæðium varðandi þurra-, raka– og rykuga staði.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Lesa úr raflagnateikningum.
  • Teikna í ofangreindar neysluveitur.
  • Beita tölvuforriti við gerð raflagnateikninga.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Lesa úr raflagnateikningum.
  • Teikna í ofangreindar neysluveitur.
  • Beita tölvuforriti við gerð raflagnateikninga.