SÆNS2NC05 - Sænska fyrir sjálfstæðan notanda II

Áfangalýsing:

Áfanginn er kenndur á sænsku og eru öll námsgögn á sænsku. Allir fjórir færniþættirnir, lestur, ritun, hlustun og tal, eru þjálfaðir markvisst. Undirstöðuatriði sænskrar málfræði eru rifjuð upp. Áhersla er lögð á hagnýtan munnlegan og skriflegan skilning. Auk þess á áfanginn að styðja almenna kunnáttu um sænskumælandi menningu, sögu og samfélag. Áfanginn á áfram að stuðla að því að nemandinn verði betri lesandi.

Forkröfur: SÆNS2NB05

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • almennum orðaforða sem tengist efni áfangans
  • helstu málfræðiatriðum í sænsku og geta nýtt sér þau í rituðu og mæltu máli
  • ýmsum sviðum sænska tungumálsins, samfélagi og sögu
  • notkun hjálpargagna s.s. orðabóka
  • samspili og þróun Norðurlandamálanna
  • lesa fjölbreytta texta sem tengjast efni áfangans

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa fjölbreytta texta sem tengjast efni áfangans
  • skilja talað mál á eðlilegum hraða um bæði kunnuglegt og minna kunnuglegt efni
  • tjá sig um valin málefni og geta tekið þátt í samræðum
  • skilja skrifað mál um bæði kunnuglegt og minna kunnuglegt efni
  • beita gagnrýnni hugsun

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • eiga munnleg og skrifleg samskipti og aðlaga tungumálið samkvæmt efni, markmiði, aðstæðum og viðtakanda
  • kunna að skoða innihald í munnlegu og skriflegu tungumáli með gagnrýnni hugsun
  • setja sænskuna í samhengi við önnur Norðurlandamál og önnur tungumál sem nemendur kunna
  • íhuga eigin tungumálakunnáttu
  • þróa með sér sjálfstæð vinnubrögð, ábyrgð og trú á eigin getu í sænsku 
  • nýta grundvallaratriði sænskrar málfræði í ritun og tali