SAGA3ÞM05 - Þjóðarmorð og þjóðernishreinsanir

Áfangalýsing:

Í áfanganum verður valdir atburðir úr mannkynssögunni skoðaðir út frá skilgreiningunni þjóðarmorð, þjóðernishreinsanir og/eða ofsóknir. Áherslan verður á þátt opinberra aðila og ráðamanna í tengslum við slíka voðaatburði. Refsingar og nútímastríðsglæpadómstólar verða einnig til umfjöllunar og hlutverk þeirra skoðað. Nemendur eiga að kynna sér ýmis þjóðarmorð og voðaverk sem framin hafa verið á rúmum hundrað árum, einkum af opinberum aðilum eða ríkisstjórnum.

Forkröfur: SAGA2MÍ05

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • hugtakinu þjóðarmorð, hvenær það varð til, hvers vegna og hvernig það er skilgreint.
  • þjóðernishreinsunum og geti skilgreint hugtakið
  • stríðsglæpadómstólum og hvernig þeir starfa
  • helstu þjóðarmorðum/voðaverkum sem tengjast efninu, átti sig á umfangi þeirra, orsökum og afleiðingum

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita sjálfstæðum vinnubrögðum við öflun heimilda og úrvinnslu þeirra
  • tjá sig í ræðu og riti um efni áfangans, rökræða efnið og geta miðlað því á fjölbreyttan máta
  • skilgreina þau hugtök sem áfanginn fjallar um
  • greina áreiðanleika heimilda og upplýsinga sem er að finna um efnið
  • lesa fræðilega texta á íslensku og erlendum málum um efni áfangans

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilgreina orsakir þessara voðaverka, gera sér grein fyrir afleiðingum þeirra bæði staðbundið og á heimsvísu
  • átta sig á hvers vegna leiðtogar og hópar hvetja til voðaverka gegn þjóðum, þjóðarbrotum og etnískum hópum