Í þessum áfanga er lögð áhersla á hugmyndafræði og gildi sem liggja heilbrigðisþjónustu til grundvallar. Fjallað verður lítillega um helstu kenningar í sögu siðfræðinnar og farið verður í ákveðin grunnhugtök úr siðfræði heilbrigðisþjónustunnar t.d. sjálfræði, velferð, faglegt forræði, skyldur fagfólks og réttindi skjólstæðinga. Áhersla er lögð á siðferði heilbrigðisþjónustu og samskipti fagfólks og skjólstæðinga og einnig eru siðareglur þessara fagstétta skoðaðar. Spurningar á borð við hverjar eru skyldur fagfólks og hver eru réttindi skjólstæðinga verða ræddar. Eru tækniframfarir til góðs? Hver eru helstu álitamál við upphaf lífs og við lok þess? Hverjar eru hugmyndir fólks um réttláta heilbrigðisþjónustu? Spurningar sem þessar verða íhugaðar og skoðaðar fra ýmsum sjónarhornum.
Forkröfur: Engar
Markmið:
Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: