SIGF3SA05 - Siglingafræði 2

Áfangalýsing:

Nám í þessum áfanga á að veita nemendum frekari og ítarlegri þekkingu á undirstöðuatriðum siglingafræðinnar. Nemendur skulu einnig fá kynningu á notkun ATT (Admiralty Tide Tables)

Forkröfur: SIGF2SA05

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • hvernig skipssegulmagn og járn og stál skekkir segulkompásinn
  • aðferðir við að leiðrétta áttavita og þau tæki sem notuð eru við það
  • innihald siglingaáætlunar og viti hvernig hún er unnin
  • notkun þríhyrningamælinga við að staðsetja skip
  • notkun ratsjár við að finna stefnur nálægra skipa og til þess að tryggja næga fjarlægð á milli skipa þegar stefnur þeirra skarast
  • reglur um færslu leiðarbókar/dagbókar
  • færslur í skipsdagbók

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • reikna út og teiknað flóðlínurit fyrir íslenskar hafnir
  • nota íslensk og erlend straumkort
  • unnið í sjókorti, sett út staðarlínur, miðanir og mið. Merkt og mælt upp staðsetningu
  • gert siglingaáætlun („Passage Planning“)
  • reiknað út stefnu og vegalengd milli staða (þríhyrningsfræði)
  • reiknað út haldna stefnu og haldna vegalengd o reiknað út ágiskaðan stað með notkun þríhyrningafræðinnar
  • reiknað út hraða og stefnu annarra skipa í ratsjá og lagt mat á árekstarhættu
  • reiknað leiðréttingu vegmælis

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • gera siglingaráætlanir (,,Passageplanning“)
  • reikna út stefnu og vegalengd á milli staða með notkun hornafalla
  • nota straumþríhyrninga
  • nota flóðlínurit