SMÍÐ2HN06 - Handavinna málmiðna II

Áfangalýsing:

Nemendur læra kynnast notkun á helstu handverkfærum og einföldum rafmagnsverkfærum svo sem handborvélum og standborvélum. Þeir kynnast eðli mismunandi málma við smíðar á hverskyns íhlutum. áfanganum loknum geta nemendur smíðað einfalda hluti úr málmi.

Forkröfur: SMÍÐ1NH06

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • meðferð og umhirðu verkfæra.
  • mælitækjum og uppmerkitækjum.
  • notkun slípibanda og smergelskífa.
  • öryggisreglum við borun og slípun.
  • almennum öryggisreglum á vinnusvæði.
  • mikilvægi þess að ganga þrifalega um vinnusvæði sitt.
  • mikilvægi þess að ganga á réttan hátt frá spilliefnum, t.d. olíu og olíublautum pappír.
  • mikilvægi góðrar loftræstingar.
  • undirstöðuatriðum heilsuverndar.
  • réttri notkun hlífðarfatnaðar og persónuhlífa.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • smíða hluti úr mismunandi málmum.
  • lesa af teikningum.
  • beita mælitækjum og uppmerkitækjum.
  • velja bora eftir efnum sem bora skal og snúningshraða eftir borstærð og efnum.
  • velja rétta borstærð í töflu eftir stærð snitttappa sem nota á.
  • velja réttar þjalir fyrir efni og áferð.
  • beita helstu hjálpartækjum, t.d. rissnál, vinkli, hæðarrissi og hringfara við uppmerkingu á efni fyrir vinnslu.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • efna niður og málsetja einfalda hluti úr málmi sem metið er með verklegum og skriflegum æfingum.
  • ákveða rétta vinnsluaðferð sem metið er með verklegum og skriflegum æfingum.
  • bora í málma af mismunandi gerðum og þykktum sem metið er með verklegum og skriflegum æfingum.
  • beita snitti til skrúfugerðar sem metið er með verklegum og skriflegum æfingum.
  • beita réttri yfirborðsmeðhöndlun miðað við efnisgerð og notkun sem metið er með verklegum og skriflegum æfingum.