SMÍÐ1NH06 - Handavinna málmiðna 1
- Nemendur kynnast helstu handverkfærum sem og rafmagns og loftverkfærum og bæta þeirri þekkingu við kunnáttu sína.
- Nemendur læra að þekkja helstu smíðamálma
- Nemendur læra að lesa teikningar
Forkröfur:
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- meðferð og umhirðu verkfæra
- mælitækjum og uppmerkitækjum
- notkun slípibanda og smergelskífa
- almennum öryggisreglum á vinnusvæði
- mikilvægi þess að ganga þrifalega um vinnusvæði sitt
- mikilvægi þess að ganga á réttan hátt frá spilliefnum, t.d. olíu og olíublautum pappír
- mikilvægi góðrar loftræstingar
- undirstöðuatriðum heilsuverndar
- réttri notkun hlífðarfatnaðar og persónuhlífa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- smíða hluti úr mismunandi málmum
- beita mælitækjum og uppmerkitækjum
- beita helstu hjálpartækjum, t.d. rissnál, vinkli, hæðarrissi og hringfara við uppmerkingu á efni fyrir vinnslu
- beita réttri yfirborðsmeðhöndlun miðað við efnisgerð og notkun
- velja sér skeráhöld til verka
- draga bor og rennistál ef á þarf að halda
- bora í málma af mismunandi gerðum og þykktum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- efna niður og málsetja einfalda hluti úr málmi
- ákveða rétta vinnsluaðferð
- velja réttar þjalir fyrir efni og áferð
- velja bora eftir efnum sem bora skal og snúningshraða eftir borstærð og efnum
- velja rétta borstærð í töflu eftir stærð snitttappa sem nota á
- gera skrúfgang með snittverkfærum og nota snitttöflu i verklegum æfingum
- skipuleggja vinnu sína á sjálfstæðan og agaðan hátt