SRSK2SA05 - Siglingareglur og skipstjórn - Grunnatriði

Áfangalýsing:

Nám í þessum áfanga er ætlað að veita nemendum þekking og skilning á alþjóðlegum siglingareglum, tilgangi þeirra og þjálfun og færni í að beita þeim, þ.m.t reglum um neyðarmerki og merkjagjafir í sjávarháska. Nemendur tileinka sér ákvæði reglnanna og þekkja afleiðingar þess ef brotið er gegn þeim. Nemandinn skal öðlast æfingu í ratsjársiglingu í ratsjársamlíki og undirstöðuatriðum um varðstöðu í brú. Nemendur læra gerð neyðaráætlunar og um ráðstafanir sem viðhafa þarf til að tryggja öryggi skips, áhafnar, farþega og farms þegar hættu – eða neyðarástand skapast. Nemandi fær fræðslu um stjórntök skipa almennt en þó sérstaklega um viðbrögð við óvenjulegum eða afbrigðilegum aðstæðum þannig hann geti brugðist rétt við þegar slíkt kemur upp á ferli hans sem skipstjórnarmanns. Veita á nemendum undirstöðuþekkingu á björgunar – og öryggisbúnaði, um undirbúning fyrir notkun hans og sjósetningu. (Model course 7.01, Competence 1.5.1, 1.5.2, 1.9.3, Model course 7.03, competence 1.2.1, 1.2.2, 1.5.2.7).

Forkröfur: SIGF2SA04

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • Ákvæðum siglingareglnanna, þ.m.t notkun ljós – og dagmerkja og hljóðmerkja
  • Stjórntökum sem viðhafa skal gagnvart vélskipum í sjónmáli hvert frá öðru
  • Ákvæðum um gagnkvæma tillitssemi við siglingar og gildi þeirra
  • Reglum um prófanir siglingaljósa
  • Reglum um alþjóðlegar vaktreglur, skv. ákvæðum STCW-samþykktarinnar;
  • Reglum sem gilda um siglingar í dimmviðri, þokumerkjum sem gefa skal í slæmu skyggni og ráðstöfunum sem viðhafa skal.
  • Neyðarmerkjum og merkjagjöfum í sjávarháska
  • Mismun raun – og sýndarhreyfinga í ratsjá og takmörkunum sem geta verið á næmni ratsjár og þar með á áreiðanleika hennar
  • Skjölum sem eiga að vera um borð í skipum til þess að þau teljist haffær
  • Reglur um lágmarksmönnun og réttindi til þess að mega starfa á skipum
  • Gerð, hlutverki og inntaki neyðaráætlunar
  • Framkvæmd æfinga um borð í skipum og viðhaldi öryggisbúnaðar
  • Með hvaða hætti stjórnvana skipi er lagt til driftar
  • Hættum við fiskveiðar og siglingu í rekís og siglingu undan vindi og öldu
  • Ráðstöfunum sem beita má þegar veiðarfæri festast í botni
  • Búnaði sem nota skal við drátt á skipi og fyrirkomulagi hans
  • Code of safety for fishermen and fishing vessels, Part A
  • Aðferðum sem nota má við að koma strönduðu skipi á flot með og án aðstoðar

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Haga siglingu samkvæmt siglingareglum
  • Skilja þýðingu neyðarmerkja
  • Greina helstu hættur sem eru samfara siglingu skipa
  • Sigla skipi í ratsjársiglingu
  • Geta útskýrt hvað felst í varðstöðu í brú
  • Reikna út álag á víra og hífingabúnað þegar notaðar eru margskonar blakkir til að létta álag

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Sigla skipi við allar raunhæfar aðstæður án þess að gerast brotlegur við siglingareglur
  • Meta árekstrarhættu í ratsjá
  • Senda út neyðarmerki með réttum hætti
  • Leggja réttan skilning í þýðingu neyðarmerkja þegar þeirra verður vart
  • Geta notað helstu björgunartæki skipsins
  • Geta beitt réttum stjórntölum skips við afbrigðilegar aðstæður
  • Gera neyðaráætlun og herbergisfyrirmæli