STÆR2LT05 - Stærðfræði - tölfræði, talningar og líkindi

Áfangalýsing

Meginviðfangsefni áfangans skiptist í fjóra þætti sem eru lýsandi tölfræði, talningar og líkindafræði, líkindadreifingar og fylgni.

Forkröfur: STÆR2GS05

Markmið

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • hugtökum úr lýsandi tölfræði
  • hugtökum á flokkun og lýsingu á gögnum
  • mismunandi tegundum myndrita
  • skilgreiningu á miðsækni og dreifingu
  • hugtökum sem lýsa miðju og dreifingu gagna
  • hugtökum úr líkindafræði
  • líkindadreifingum
  • fylgnihugtakinu


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • búa til tíðnitöflu í Excel
  • nýta Excel til tölfræðireikninga
  • búa til myndrit fyrir gagnasöfn
  • nýta talningareglurnar þrjár
  • reikna út líkindi
  • nota líkindadreifingar
  • reikna fylgni


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta unnið með þau.
  • geta hagnýtt sér stærðfræðilega þekkingu til að velja þær reikniaðferðir sem við eiga hverju sinni til að leysa verkefni og beita þeim rétt.
  • dregið ályktanir (túlkað) tölfræðilegar niðurstöður, m.a. að geta túlkað fylgnistuðla.
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu tölfræðilegra viðfangsefna og gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna.
  • skrá niður lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega fyrir öðrum.
  • geta meðtekið og túlkað útskýringar og röksemdir annarra í mæltu máli og í texta og geta skipst á skoðunum við aðra um lausnaraðferðir.
  • geta greint og hagnýtt upplýsingar á sviði stærðfræði á viðkomandi þrepi í fjölmiðlum.
  • leysa stærðfræðileg viðfangsefni í öðrum námsgreinum og í daglegu lífi með því að beita gagnrýninni og skapandi hugsun.

 

Áfangakeðja í stærðfræði