Í þessum áfanga er fjallað um grunnvirkni og notkun rofa og segulliða, rofa- og snertitækni kynnt. Fjallað er um virkni og notkun segulliða í stýrirásum og kraftrásum og tímaliða í stýrirásum. Farið er í undirstöðuatriði við gerð á einlínu- og fjöllínumyndum svo og tákn og staðla sem notaðir eru við gerð teikninga fyrir segulliðastýringar. Notkun á raðtengjum og merkjakerfi teikninga ásamt gerð tengilista og verkleg verkefni því tengd. Notkun yfirálagsvarna, mótor varrofa, öryggisrofa og varnarbúnaðar sem notaður er í kraftrásum. Þriggja fasa netkerfi kynnt, farið í grunnatriði þriggja fasa skammhlaups mótora og álags flokkar AC kynntir. Kynntar verði straum-, spennu- og ohmskar mælingar þannig að þær nýtist við bilanaleit. Áfanginn skal vera verkefnastýrður með verklegum verkefnum. Mikilvægt er að nemendur kynnist tölvuforriti til teikninga á rásum segulliða. Áhersla er lögð á verkefnavinnu og verklegar æfingar þar sem nemendur brjóta verkefni til mergjar, tengja, prófa og mæla og taka saman niðurstöður. Einnig er lögð áhersla á að nemendur nýti sér mælitæki til að finna tengivillur og bilanir.
Forkröfur: TNTÆ1GA04
Markmið:
Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: