STÝR3RK05 - Stýritækni sterkstraums

Áfangalýsing:

Í áfanganum er unnið með iðntölvur (PLC), eiginleika þeirra og notkunarmöguleika í sterkstraumsstýringum. Nemendur læra að setja upp og forrita iðntölvur, nota helstu forritunarhamra samkvæmt EN61131-3 staðlinum (ladder, virkniblokkir, skipanalisti og flæðirit), ásamt því að tengja skynjara, drifhluti og ytri búnað við iðntölvur.

Farið er í reikniaðgerðir, teljara, notkun aðgerðaskjáa og grunnaðferðir P, PI og PID reglunnar. Áhersla er á að nemendur geti sett upp fullbúna stýringu, prófað hana og framkvæmt bilanagreiningu.

Forkröfur: STÝR2GB04

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • Eiginleikum PLC iðntölva og helstu notkunarsviðum þeirra
  • Helstu gerðum skynjara (hliðrænni og stafrænni merkingu) og tengingum þeirra
  • EN61131-3 staðlinum og forritunarhamrum: ladder, virkniblokkum, skipanalista og flæðiritum
  • Aðgerðaskjám (HMI) og grunnaðferðum P/PI/PID reglunar

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Hanna sjálfvirk ferli með skynjurum og drifhlutum
  • Tengja iðntölvu við skynjara, aflstýringar og annan búnað
  • Forrita iðntölvu með ladder, virkniblokkum og flæðiritum
  • Lesa teikningar og ferla, túlka hlíðræn og stafræn merki
  • Nota aðgerðaskjái (HMI) til að setja upp einfalt viðmót fyrir ferlastýringu

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Hanna og setja upp heilstæða iðnstýringu með nokkrum skynjurum og drifhlutum
  • Prófa, bilanagreina og bæta stýringu út frá ferlum og kröfum
  • Velja réttan búnað og forritunaraðferðir fyrir tiltekið stýriverkefni
  • Skila af sér virku, prófuðu og skjalfestu lokaútfærslu verkefna