UMÁT3UN05 - Umhverfis- og átthagafræði

Lýsing

Áfangalýsing:

Áfanginn er hluti af almennum kjarna á stúdentsprófsbrautum. Í áfanganum er fjallað um umhverfismál og áhrif einstaklinga og samfélag á sjálfbæra þróun. Nemendur kynnast helstu umhverfisvandamálum og því hvað móti tengsl manns og náttúru. Nærumhverfið skoðað út frá landfræðilegum staðháttum og náttúrufari. Áherslan í áfanganum er á tengsl og samspil einstaklingsins og nærumhverfisins annars vegar og samspil hins íslenska samfélags og alþjóðasamfélagsins hins vegar.

Forkröfur: FÉLV1IF05 og NÁTV1IN05

Markmið:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • helstu umhverfismálum sem eru í brennidepli á hverjum tíma
  • umhverfismálum í alþjóðlegu samhengi og ábyrgð Íslands
  • áhrifum mannsins á umhverfi sitt, orsökum og afleiðingum og ábyrgð einstaklingsins
  • sögu svæðisins í ljósi samspils manns og umhverfis
  • nýtingu náttúruauðlinda í nærumhverfi
  • mikilvægi gagnrýninnar hugsunar
  • vinna með fjölbreyttar heimildir og koma vinnu sinni á framfæri á fjölbreyttan hátt
  • helstu hugtökum sem tengist áfanganum og þrepi


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina hagsmuni varðandi ágreining í umhverfismálum
  • að afla sér upplýsinga um umhverfismál í nærumhverfi og heimfæra á aðstæður í víðara samhengi
  • nýta fjölbreyttar heimildir til að tileinka sér náttúru og sögu svæðisins
  • greina alþjóðlega samningar og skýrslur
  • nota hugtök og setja þau samhengi


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • mynda sér skoðanir í umhverfismálum og geti rökstutt þær
  • geti útskýrt áhrif mannlegrar breytni á nærumhverfið
  • beita gagnrýnni hugsun og greina orsakasamhengi atburða
  • setja sjálfan sig í samhengi sögunnar sem þátttakandi og skoðandi