UMFE1UF02 - Undirbúningur til ökuprófs

Lýsing

Áfangalýsing:

Farið er í gegnum námsefni til almennra ökuréttinda (bílprófs) með það að markmiði að auðvelda nemendum próftöku ákveði viðkomandi að reyna við slíkt. Farið er í umferðarreglur, umferðarmerkin og almenna hegðun í umferð auk helstu umgengnisreglna við bifreiðar.

Forkröfur: Engar

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • Umferðarreglum sem gilda á Íslandi og annars staðar
  • Umferðarmerkjum og skiltum sem tíðkast hér á landi.
  • Helstuatriði/upplýsingar um bifreiðar og íhluti hennar
  • Umferðarhegðun

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Þekkja helstu umferðarmerki og þýðingu þeirra
  • Tengja umferðarreglur við daglegan akstur og þýðingu þeirra
  • Bregðast við aðstæðum í umferð að því leyti sem snýr að umferðarreglum og hegðun annarra ökumanna í umferðinni

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Taka ökupróf
  • Bregðast við aðstæðum í umferðinni
  • Þekkja aðstæður í umferð
  • Vita hvernig bregðast skal við með tilliti til umferðarreglna og umferðarskilta/-merkja