UMHV2SA05 - Umhverfisfræði sjávar - lífríki, mengun, dagbækur

Áfangalýsing:

Nám í þessum áfanga á að veita nemendum almenna fræðslu um utanaðkomandi ógnir við lífríki sjávar, þau áhrif sem útgerð skipa hefur eða getur haft á umhverfisþætti og þær reglur sem settar hafa verið í þeim tilgangi að draga úr þeim áhrifum. Nemendur kynnast þeim þáttum sem stuðla að eða geta valdið mengun eða breytingum á umhverfisþáttum og þeim afleiðingum sem þær breytingar kunna að hafa á lífríki sjávar. Almennt skal fjallað um mengun lofthjúps og áhrif hennar á veðurfar og hafstrauma en einnig áhrif mengunar á lífríki sjávar, svo sem á örverumyndun í fjörðum og flóum sem geta valdið súrefnisþurrð í sjó. Jafnframt er fjallað um þær hættur sem lífríki sjávar stafar af mengun frá skipum og þau lög og reglur sem þar um gilda um mengunarvarnir ásamt því að fjallað er um einstök mengunaratvik, orsakir þeirra og viðbrögð

Forkröfur: Engar

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu tegundum mengunar sjávar og strandsvæða, uppruna hennarog afleiðingar.
  • viðkvæmum vistkerfumsjávar og áhrifum mengunar á þau
  • ákvæðum alþjóðasamþykktar til að koma í veg fyrir mengun sjávar, MARPOL.
  • ákvæðum íslenskra laga um varnir gegn mengun og mengunarvarnir hafs og stranda.
  • reglum um viðbrögð og tilkynningar til stjórnvalda, við mengunarslys eða óhapp vegna eiturefna frá skipum eða farmi
  • notkun mengandi efna í skipum og sjávarútvegi, þeim reglum sem gilda um slík efni og hvernig skuli með þau fara.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Afla sér upplýsinga um umhverfismál
  • Fara eftir reglum um mengunarvarnir og viðbrögð við mengun.
  • Þekkja hlutverk sitt og ábyrgð í úrgangsmálum sem skipstjórnandi og skipverji.
  • Gera viðeigandi ráðstafanir vegna förgunar efna og til að koma í veg fyrir mengun.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • fyrirbyggja mengun hafs af völdum skipaútgerðar
  • bregðast rétt við mengunaróhöppum með bráðaaðgerðum og tilkynningum
  • stjórna skipi og vinnslu með lágmarks mengun fyrir umhverfið.
  • halda olíudagbók.
  • halda sorpdagbók.