UPPT1UV05 - Upplýsingatækni og vefsíðugerð
Áfangalýsing:
Í áfanganum þjálfast nemendur í notkun töflureiknis (Excel) og hugbúnaðar til ritvinnslu (Word), glærugerðar (Powerpoint) og tölvupóstssamskipta (Outlook). Þá verður farið í leit á Netinu og hvernig meta á gögn sem finnast við slíka leit. Einnig kynnast nemendur einfaldri vefsíðugerð með fyrirfram sniðnu vef-viðmóti (Wix).
Forkröfur: Engar
Markmið:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- notkun töflureiknis og hugbúnaðar til ritvinnslu.
- glærugerð og tölvupóstssamskiptum.
- leit á Netinu og hvernig meta á gögn sem leitað er eftir.
- einfaldri vefsíðugerð.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna í þeim hugbúnaði sem kennt er á.
- fylgja fyrirmælum við vinnslu verkefna í viðkomandi hugbúnaði.
- setja upp og ljúka verkefnum samkvæmt fyrirmælum.
- vista skjöl sem hann vinnur með á viðeigandi stað.
- leita að gögnum og meta gæði þeirra.
- útbúa einfaldar vefsíður með texta og myndum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nota þann hugbúnað sem kennt er á á sjálfstæðan hátt.
- nýta hugbúnaðinn við aðrar aðstæður, í skóla og starfi.
- finna upplýsingar og gögn sem nýtast honum í námi og starfi.
- búa til einfaldar vefsíður.