VÉLS2VB05 - Vélstjórn 3

Áfangalýsing:

Nemendur læra hvernig nota má teikningar og leiðbeiningabæklinga til að öðlast þekkingu á uppbyggingu einstakra vélarhluta og kerfa. Þeir kynnast eldsneytisolíum og kerfum, smurolíum og smurolíukerfum, krosshausvélum og langbulluvélum með tilliti til brennslu svartolíu, notkun á mismunandi smurolíum. Nýtingu glataðs varma frá vélum með varmaskiptum og afgaskötlum. Þeir öðlast þekkingu á tæringarvörnum ferskvatnsog sjókerfa um borð í skipum ásamt því að þekkja helstu gerðir skilvindna og kunna skil á skilvindukerfum, austurog kjölfestukerfum og þeim reglum sem um þær gilda (MARPOL).

Forkröfur: Engar

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • Nútímaeldsneytiskerfi sem hönnuð eru fyrir gasolíu- og svartolíu-
  • meðhöndlun og geti útskýrt tilgang hvers einstaks þáttar í kerfunum með aðstoð teikninga
  • Helstu eiginleiku eldsneytisolíu af mismunandi flokkum ásamt grundvallaratriðum um skiljun
  • Nútíma smurolíukerfi og geti útskýrt tilgang hvers einstaks þáttar í kerfinu með aðstoð teikninga
  • Helstu eiginleikum smurolíu af mismunandi flokkum og meðferð hennar við daglegan rekstur véla
  • Nútíma kælivatns- og sjókælikerfi og geti útskýrt tilgang hvers einstaks þáttar í kerfunum með aðstoð teikninga
  • Helstu eiginleikum fersk- og saltvatns til kælingar og meðhöndlun þess við daglegan rekstur véla
  • Helstu orsökum og skilyrðum tæringar í skipum og vélakerfum ásamt þeim aðgerðum sem beitt er til varnar tæringu
  • Gerð og uppbyggingu krosshausvéla

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Nota teikningar og leiðbeiningabæklinga til að átta sig á uppbyggingu vélahluta og búnaðar og hvernig þeir vinna
  • Rekja og átta sig á samhengi kerfa í vélarúmi

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Annast rekstur skilvindukerfa í eldsneytis- og smurolíkerfum
  • Annast rekstur aðal- og ljósavéla í minni skipum og sinna öllu fyrirbyggjandi viðhaldi á þeim
  • Mæla og meta ástand kælivatns m.t.t tæringar