VGRT2GA04 - Verktækni grunnnáms 2

Áfangalýsing:

Í áfanganum fær nemandinn þjálfun í að smíða rafeindarásir með a.m.k. 10 íhlutum. Nemandinn les teikningu frá kennara, lærir um virkni og hlutverk íhluta, smíðar rásir og beitir mælitækjum til að kanna virkni rása og átta sig á hvaða afleiðingar það hefur ef einstaka íhlutir bila. Nemandinn fær leiðsögn við að framkvæma einfalda bilanaleit með notkun mælinga.

Forkröfur: VGRT1GA04

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hlutfalli milli straums, spennu og viðnáms.
  • Breytingum sem verða á spennu ef viðnám breytist.
  • Hlutverki og virkni íhluta.
  • Efnisfræði íhluta.
  • Myndun tæringar og spennu milli efna.
  • Hvernig meðhöndla skal verkfæri.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Lóða íhluti upp á prentplötu.
  • Ohmmæla íhluti í rás með tilliti til annara íhluta.
  • Reikna afltöku rásarinnar.
  • Reikna strauma þar sem viðnám og spenna liggur fyrir.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Teikna rafeindarás á blaði.
  • Skilja virkni einfaldra rafrása.
  • Spennumæla spennusettar rásir.
  • Losa íhluti upp án þess að skemma þá.
  • Bilanagreina ef rásin virkar ekki.