VINN3ÖH08 - Vinnustaðanám á hjúkrunarheimili eða öldrunarlækningadeild

Áfangalýsing:

Vinnustaðanámið/verknámið fer fram á öldrunarlækningadeildum eða hjúkrunarheimilum. Verklegur hluti áfangans er tólf átta klukkustunda vaktir á önn. Nemendur vinna jafnframt verkefni tengt viðfangsefnum vinnustaðanámsins. Kennari áfangans, sjúkraliði/leiðbeinandi og deildarstjóri bera sameiginlega ábyrgð á verklegu námi sjúkraliðanema. Nemandi fylgir leiðbeinanda við öll almenn störf sjúkraliða. Í vinnustaðanáminu fær nemandi tækifæri til þess að sýna aukið sjálfstæði við skipulagningu hjúkrunarstarfa og við mat á hjúkrunarþörfum skjólstæðinga, jafnframt að benda á lausnir á þeim hjúkrunarviðfangsefnum sem við eiga á vinnustaðnum. Í upphafi tímabils setur nemandi sér persónuleg og fagleg markmið um verknámið. Á meðan á verknámi stendur skal nemandi fylla út gátlista og ferilbók um unna verkþætti.

Forkröfur: HJVG1VG05, LÍBE1HB01

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • athöfnum daglegs lífs (ADL) við umönnun aldraðra
  • helstu þáttum sem hafa áhrif á heilsu og lífsgæði aldraðra
  • forvörnum og slysagildrum í umhverfi aldraðra
  • fylgikvillum rúmlegu og forvörnum þeirra
  • helstu hjálpartækjum sem notuð eru í hjúkrun aldraðra
  • faglegri umhyggju og samskiptum
  • mikilvægi eftirlits og mats á líkamlegu og andlegu ástandi skjólstæðinga
  • mælitækjum og öðrum hjúkrunargögnum sem eru notuð í hjúkrun aldraðra
  • skráningu hjúkrunar á hjúkrunarheimilum og í heimahjúkrun
  • sjálfsákvörðunarrétti og réttindum aldraðra samkvæmt lögum

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • meta sjálfsbjargargetu og þarfir aldraðra í athöfnum daglegs lífs
  • sýna öldruðum virðingu og faglega umhyggju
  • mæla og skrá algengar athuganir hjá öldruðum
  • nota helstu hjálpartæki og hjúkrunargögn á viðeigandi hátt
  • taka þátt í þverfaglegri samvinnu heilbrigðisstétta
  • útskýra lögvernduð réttindi aldraðra

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • velja viðeigandi hjúkrunarmeðferð hverju sinni og geta rökstutt hana
  • sýna hæfni í samskiptum við aldraða, aðstandendur þeirra og samstarfsfólk
  • leggja sitt að mörkum í þverfaglegri samvinnu
  • hjúkra öldruðum á heildrænan og faglegan hátt