Í áfanganum læra nemendur að útsetja, hlaða og múrhúða veggi, súlur m.m. úr vikur‐ og gjallplötum innanhúss með áherslu á grunnverkþætti í starfi múrara. Lögð er áhersla á skipuleg vinnubrögð, efnisþekkingu, efnismeðferð og umgengni. Gerð er grein fyrir uppbyggingu múrhúðar innanhúss og fjallað um mismunandi múrblöndur, áhöld og vélar. Nemendur læra að hlaða, rappa, múrfylla, afrétta, smíða máta og nota skapalón; pússa og draga hleðslumynstur. Jafnframt er farið yfir frágang í kringum glugga‐ og hurðaop og gerð grein fyrir hleðslu og frágangi á tilbúnum milliveggjaeiningum og glersteini. Kennsla í áfanganum er aðallega verkleg þar sem nemendur vinna fjölþætt einstaklingsverkefni. Í áfanganum læra nemendur að leggja flísar í múr eða lím og ganga frá. Farið er yfir undirbúning á flötum bæði inni og úti, deilingu á fleti, útsetningu, skurð og sögun, lagningu, fúgun og eftirmeðhöndlun. Lögð er sérstök áhersla á undirbúning, lagningu og frágang í votrýmum s.s. vatnsþéttingu og frágang í kringum op og lagnir, val á lími eða múr, flísaborun, frágang á þenslufúgum m.m. Kennslan er bæði bókleg og verkleg og nemendur fá þjálfun í að undirbúa, leggja og ganga frá flísum.
Forkröfur: Engar
Markmið:
Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: