VÖRS1VB04 - Viðhaldsstjórnun, gæðakerfi og öryggisstjórnun

Áfangalýsing:

Nemendur öðlast þekkingu og skilning á gildi gæðakerfa og færni við að taka þátt í skipulögðu gæðastarfi á vinnustað, setja upp einfalt gæðakerfi á grunni viðhaldsstjórnunar, og setja upp verkþáttarit auk þess að setja upp skipulagt ferli sem ákvarðar tímalengd verkefnis (cpm). Nemendur tileinka sér kröfur alþjóðasamþykkta um öryggisstjórnunarkerfi að því er lýtur að starfsskipulagi í vélarúmi skipa. Þeir kynnast grundvallaratriðum viðhaldsstjórnunar, þ.e. gæða- og viðhaldskerfa og öryggisstjórnunarkerfa. Ennfremur öðlast þeir haldgóða þekkingu í viðhaldsstjórnun, gæðastjórnun og öryggisstjórnunarkerfum og læra að setja upp gæðahandbók og gera viðhaldsáætlanir vegna gæðaeftirlits og fyrirbyggjandi viðhalds. Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautarlýsingunni.

Forkröfur: VÉLA3VA04

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • verkþáttagreiningu og flokkunarkerfum.
  • viðhaldsverkfærum og dæmigerðum viðhaldskerfum, uppbyggingu og markmiðum þeirra.
  • hlutverki, ábyrgð, starfssviði og störfum vélstjóra á stærri skipum.
  • flokkunarkerfum, svo sem SFI-kerfinu.
  • tilgangi, notkun og uppbyggingu viðhaldsforrita fyrir vélbúnað.
  • helstu gerðum viðhaldskerfa, þ.e. bilanaviðhaldi, spáviðhaldi, tímastýrðu viðhaldi og viðhaldi byggðu á ástandsskoðun.
  • helstu tækjum sem notuð eru við ástandsskoðun og til fyrirbyggjandi viðhalds, svo sem titringsmælum, þykktarmælum og útleiðslumælum.
  • uppbyggingu og markmiðum verkþáttarita, (cpm).
  • grundvallar hugtökum gæðastjórnunar og gæðavottunar, gæðakerfum og -handbókum.
  • öryggisstjórnunarkerfum, þ.m.t. ISM kóðanum og þeim kröfum sem hann gerir til vélstjóra.
  • helstu aðferðum við tæringarvarnir í skipum og á hverju þær aðferðir byggja.
  • helstu verkbókhaldskerfum.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • útskýra hvað átt er við með viðhaldsstjórnun, gæðastjórnun og öryggisstjórnunarkerfum.
  • setja upp gæðahandbók og gera viðhaldsáætlanir vegna gæðaeftirlits og viðhalds.
  • setja upp verkþáttarit, reikna út heildarverktíma og finna krítískulínuna, (cpm).
  • útskýra kröfur alþjóðasamþykkta um öryggisstjórnunarkerfi að því er lýtur að starfsskipulagi í vélarúmi skipa.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • taka þátt í skipulögðu gæðastarfi á vinnustað.
  • taka þátt í að setja upp og skipuleggja viðhalds- og öryggiskerfi um borð í skipum.
  • vinna samkvæmt verkferlum gæðastjórnunar.