Valtímabil fyrir vorönn 2026 hefst þriðjudaginn 7.október og lýkur 13. október.
Nemendur sem ætla að vera áfram í námi í MÍ þurfa að velja sér áfanga. Þetta á við um dagskólanemendur og fjarnemendur sem eru með MÍ sem heimaskóla. Opnað verður fyrir umsóknir í almennt fjarnám 1. nóvember, það verður auglýst nánar síðar.
Allir dagskólanemar þurfa að skrá sig inn í INNU og velja áfanga fyrir næstu önn. Nýnemar fá aðstoð frá sínum umsjónarkennurum í kennslustund. Aðrir nemendur fá aðstoð frá kennurum í vinnustofutíma miðvikudaginn 8. október.
Leiðbeiningar um hvernig á að velja í INNU
Nemendur sem stefna á útskrift á vorönn þurfa að panta tíma hjá áfanga- og fjarnámsstjóra eða náms- og starfsráðgjafa til að fara yfir valið.
Upplýsingar um hvaða áfanga þarf að velja eftir námsbrautum: