Val fyrir vorönn 2027

Val dagskólanema fyrir vorönn 2027 verður opnað  þriðjudaginn 6. október. Skráning í fjarnám hefst 2. nóvember. 

Við viljum biðja ykkur að athuga vel eftirfarandi:

  • Flestir nemendur hafa nú þegar verið skráðir í þá kjarna áfanga sem þeir þurfa að taka samkvæmt námsbraut.
  • Flestir nemendur hafa einnig verið skráðir í þá áfanga sem tilheyra þeirra brautarkjarna eða faggrein.
  • Nemendur í verknámi hafa ekki mikið svigrúm til að taka valgreinar en skoðið vel ef þið eruð ekki í fullu námi.
  • Nemendur á opinni braut þurfa sérstaklega að hafa í huga hvaða línu þeirra val liggur á.
  • Ef þú ert í fullu námi þarftu 30-35 einingar á önn
  • Nemendur á 2. og 3. ári á stúdentsbrautum þurfa að passa upp á að taka valáfanga á þriðja þrepi

 

Ef þið viljið breyta eða bæta við áföngum þá getið þið gert það sjálf í Innu ( sjá leiðibeiningar hér) eða pantað tíma og fengið aðstoð (hjá Dórótheu. Halldóru eða Ernu). Hægt er að bóka tíma hér

 

 

Hér má sjá þá valáfanga sem verða í boði á vorönn 2027:

Valáfangar

Fatasaumur - Snið og saumur

Stutt heiti: FATS1SS05
Grunnáfangi í saumtækni. Nemendur læra að lesa úr máltöflum og taka líkamsmál. Lögð er áhersla á að þekkja þá sniðhluta er við koma pilsum og gera einfaldar sniðbreytingar. Kennt er að leggja rétt á efni og reikna út efnisþörf. Farið er í hin ýmsu fagheiti, notkun á saumavélum, ýmsar gerðir af efnum. Lögð er áhersla á saumtækni með ýmsum gerðum af prufusaumi og læsi á vinnulýsingar í texta og myndum. Pils verður saumað frá grunni. Nemendur tileinka sér skipulagt vinnuferli og vandaðan frágang og læra uppsetningu vinnulýsinga og flatra vinnuteikninga. Lögð er áhersla á að nemendur skilji vinnuferlið frá hugmynd að fullunninni flík og skili skissubók ásamt vinnuskýrslu, auk þess að temja sér vönduð vinnubrögð við alla þætti ferlisins.

Nýsköpun í fablab

Stutt heiti: NÝSK1AF05
Farið er í gegnum ferlið frá hugmynd að áþreifanlegri frumgerð. Kennt er á tvívíð og þrívíð teikniforrit sem henta fyrir frumgerðasmíð og framleiðslu. Verkefni eru síðan framkvæmd í tölvustýrðum vélum og fleiri möguleikar smiðjunnar kynntir.

Myndskreytingar 2

Stutt heiti: TEIK2MS05

Í áfanganum er farið nánar í stílbragð og vinnslu grafískrar teikningar. Unnið verður helst með blýant, penna, þrykk og vatnsliti. Nemendur byggja á þekkingu og tæknilegri færni úr fyrri myndskreytingaráfanga til að þróa með sér persónulegan stíl.

Sólrisuleikritið

Stutt heiti: LEIK1LH03
Áfangi fyrir þá nemendur sem ætla að taka þátt í uppsetningu eða vinnu við Sólrisuleikritið 2027.

Smíði á Go kart bíl

Stutt heiti: NÝSK1GK05
Nemendur hanna rafknúinn go-kart bíl í þrívídd og smíða frá grunni með tölvustýrðum vélum og handverkfærum. Markmiðið er að halda kappaksturskeppni þegar bíllinn er tilbúinn. Áfanginn er opinn öllum nemendum, en nauðsynlegt er að hafa nokkra nemendur sem hafa tekið áfanga í tölvuteikningu og málmsuðu.

Kórsöngur

Stutt heiti: KÓRS1KS01
Áhersla á félagsskap, samvinnu, hlustun og samsöng. Frábær leið til að finna jákvæðan og uppbyggilegan félagsskap. Kórsöngur er andleg næring og það fer engin heim af kóræfingu í vondu skapi.

Heimspeki og kvikmyndir

Stutt heiti: HEIM3KV05
Undanfari: HEIM2IH05
Í áfanganum verður horft á kvikmyndir og greind heimspekin sem kemur þar fram. Rætt verður um hlutverk kvikmynda til að skýra og sýna heimspekileg viðfangsefni. Áfanginn mun bæði gefa nemendum góða innsýn í heimspeki sem og kvikmyndum.

Grunnteikning 1

Stutt heiti: GRTE1FF05
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist almenna þekkingu og þjálfun í teiknifræðum. Áfanginn skiptist í þrjá kafla: Í byrjun er farið í fríhendis teikningu II sem er á pappír og til sölu hjá ritara MÍ. Næst er farið í flatarteikningu og að lokum er farið í fallmyndun II (hornréttar fallmyndir) og útflatningsmyndir. Í áfanganum er gert ráð fyrir að nemendur öðlist færni í meðferð og notkun mæli- og teikniáhalda. Þá fái nemandi þjálfun í flatarteikningum, vinnuteikningum með fallmyndun II og útflatningsmyndir og fríhendis teikningum. Áfanginn er undirbúningur fyrir áframhaldandi nám í teiknifræðum og lestri vinnuteikninga. Seinni tveir kaflarnir eru unnir í tölvu í teikniforritinu Fusion360 frá Autodesk.

Sjónlistir 2

Stutt heiti: SJÓN2MT05
Undanfari: SJÓN1LF05

Nemandinn lærir undirstöðuatriði í módel- og tísku- og karakterteikningu. Með margskonar efnum og aðferðum þjálfar hann sig í að yfirfæra þrívíð form mannslíkama og klæðnaðar á tvívíðan teikniflöt. Hann teiknar og mótar eftir lifandi fyrirmynd, beinagrind og tvívíðum myndum en einnig samkvæmt ímyndum sínum. Nemandinn rannsakar á agaðan hátt byggingu og mótun forma mannslíkama og tískugína með áherslu á jafnvægi, hlutföll og hreyfingu en beitir einnig frjálsri teikningu þar sem leikur, túlkun og tjáning er í forgrunni. Hann þjálfar sig í aðferðum til að meta stærðir, stefnu, hlutföll og afstöðu mismunandi líkamshluta og raða saman í heildarmynd. Hann gerir fjölbreyttar tilraunir í hugmynda og skissuvinnu og þróar verk sín í átt að persónulegri túlkun og stílfæringu á fatnaði og karakterum. Nemandinn skoðar dæmi úr myndlist og hönnun þar sem mannslíkaminn, tíska og karaktersköpun er viðfangsefnið. Nemandinn ígrundar og ræðir um verk sín og vinnuferli í samvinnu við kennara og aðra nemendur og setur eign verk fram til kynningar á skýran hátt.

Förðun - Grunnáfangi

Stutt heiti: FÖRÐ1AA03
Farið verður í greiningu húðar, form, skyggingar og grunnförðun. Nemandi lærir á efni og notkun verkefna sem tengjast faginu. Farið verður í grunn farðanir eins og náttúrulega-, dag-, kvöldförðun. Farið verður yfir einfalda handsnyrtingu og litun/formun á augabrúnum. Nemendur mæta með sínar förðunar vörur en gætu þurfti að kaupa eitthvað sem vantar.

Sálfræði - Hegðun og atferlismótun

Stutt heiti: SÁLF2HA05
Í áfanganum er farið vel í grunnhugtök virkrar skilyrðingar og hagnýtingu hennar í uppeldis-og meðferðarstarfi. Nemendur fá kynningu á og læra að greina þá þætti sem stjórna og viðhalda hegðun. Kynntar eru leiðir og hvað ber að hafa í huga þegar hegðun er skilgreind og mæld, fyrir og eftir íhlutun. Nemendur fá kynningu á og þjálfun í beitingu aðferða til að ná fram eftirsóknarverðri hegðun og draga úr óæskilegri hegðun. Farið er í árangursríkar leiðir til að gera samninga um hegðun við börn og unglinga og fjallað um leiðir til að setja mörk. Rætt er um siðferðileg álitamál sem geta komið upp við beitingu atferlismótunar.

Líffæra- og lífeðlisfræði 1

Stutt heiti: LIOL2IL05
Undanfari: LÍOL2SS05
Í áfanganum verður farið yfir grundvallaratriði í líffæra- og lífeðlisfræði. Megin viðfangsefnin eru: Flutningur og varnir þar sem fjallað er um blóð, hjarta, hringrásakerfið og varnarkerfi líkmans. Loftnám, fæða og orka þar sem fræðst er um öndunarfæri, meltingarfæri, næringu og efnaskipti. Fjallað er um þvagfæri og vökva- og rafvakajafnvægi. Í lok áfangans er farið yfir æxlun, þroska og ágrip af erfðafræði.

Enska - Fagorðaforði og ferðamál

Stutt heiti: ENSK3FO05
Undanfari: ENSK3HO05
Nemendur þjálfast í að tileinka sér aukinn orðaforða vísinda og fræða, verða læsir á flóknari texta en áður, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða.

Stjórnmálafræði

Stutt heiti: FÉLA2ST05
Undanfari: FÉLV1IF05
Helstu hugtök stjórnmálafræðinnar kynnt. Nemandinn lærir um grundvallarstjórnmálastefnur 19. aldar sem áttu eftir að móta flokkakerfi stjórnmála vestrænna ríkja, þ.m.t. Ísland. Farið er yfir helstu einkenni íslenskra stjórnmálaflokka og fjallað um hugmyndafræði flokkanna í alþjóðlegu samhengi. Íslenska valdkerfið skoðað, þrískipting ríkisvaldsins, stjórnarskráin og samspil helstu valdþátta. Kynntar verða kenningar um lýðræði, stjórnkerfi, kosningahegðun, mismunandi kjördæmaskipan og flokkaskipulag. Gerð verður grein fyrir alþjóðlegri samvinnu ríkja eftir síðari heimsstyrjöld, m.a. verður aðdraganda og þróun Evrópusambandsins lýst, uppbygging og stjórnkerfi þess og verður leitast við að varpa ljósi á umræðu og stöðu í alþjóðamálum í dag. Áhersla verður lögð á að fjalla um málefni sem efst eru á baugi í stjórnmálum, efnahagsmálum og félagsmálum og tengja við málefni sem nemendur hafa sérstakan áhuga á.

Franska - daglegt mál

Stutt heiti: FRAN2BD05
Undanfari: FRAN1AU05
Markmið með áfanganum er að gefa góða undirstöðu til notkunar og þekkingar á frönsku sem tungumáli sem og af frönskumælandi menningu, samfélagi og sögu. Áfanginn á áfram að örva almenna forvitni á tungumálum. Námsefnið byggir á áfanganum FRAN1AF05 og FRAN1AU05. Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandi þjálfist í að tjá sig á vandaðri frönsku og auki skilning sinn á töluðu og rituðu máli.

Íslenska - Yndislestur

Stutt heiti: ÍSLE3YN05
Undanfari: ÍSLE2BR05 og  ÍSLE2MG05
Áfanginn er ætlaður nemendum sem hafa áhuga á bókmenntum. Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur lesi sér til ánægju og þroska og kynnist fjölbreyttu úrvali þekktra íslenskra bókmenntaverka. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda. Nemendur lesa sex til tíu skáldverk (valin af eða í samráði við kennara) sjálfstætt á tilteknum tíma og gera kennara grein fyrir þeim með skýrslum og einkaviðtölum.

Ritlist og skapandi skrif

Stutt heiti: ÍSLE3RS05
Undanfari: ÍSLE2BR05 og ÍSLE2MG05
Í áfanganum læra nemendur um mismunandi stílbrögð í ritlist auk þess sem þeir setja saman eigin texta undir leiðsögn kennara og rýna í verk annarra. Unnið er að því að auka bókmenntalegt læsi og sköpunargáfu með það að markmiði að koma afurð sinni á framfæri. Lögð er áhersla á að efla færni nemandans til að rýna í eigin verk og annarra og gera hann hæfari til allra handa ritsmíða, hvort heldur hagnýtra eða listrænna. Að áfanganum loknum ætti nemandinn að hafa öðlast aukið sjálfstraust á sviði sköpunar og læsis sem gerir honum kleift að vinna sjálfstætt að sinni list. Í lok áfangans skilar nemandi sjálfstæðu verkefni í skapandi skrifum.

Yin jóga

Stutt heiti: JÓGA1YY01

Jóga og slökun. Nemendur kynnast grundvallarstöðum í jógaflæði, undirstöðum slakandi öndunaræfinga og hugleiðslu. Jógaflæði er bæði styrkjandi og liðkandi hreyfing þar sem reynir á jafnvægið – bæði líkamlegt og andlegt. Slakandi öndunaræfingar og hugleiðsla hjálpa til við að róa taugakerfið og geta nýst við krefjandi aðstæður þar sem máli skiptir að halda ró sinni. Námsmat byggir á þátttöku í tímum og tveimur skilaverkefnum.

Skapandi heimildamyndir

Stutt heiti: KVIK2HM05
Undanfari: FÉLV1IF05
Í áfanganum kynnast nemendur grundvallaratriðum í gerð heimildamynda og ólíkum stílbrögðum. Nemendur horfa á ólíkar heimildamyndir, rýna í þær og ræða í hópi. Nemendur fá tækifæri til að þjálfa færni til að vinna hugmynd í form heimildamyndar og skoða og greina eigið samfélag. Nemendur vinna að sjálfstæðu verkefni, skrifa handrit, taka upp myndefni og klippa saman upptökurnar svo úr verði mynd. Lögð er áhersla á að þjálfa næmni og skilning á samfélaginu í kringum okkur og miðla því á sjónrænan máta.

Næringarfræði

Stutt heiti: NÆRI2GR05
Nemendur kynnast áhrifum næringar og mataræðis á líðan og heilsu einstaklinga og þekki samspil næringar og hreyfingar. Kynntar eru ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um mataræði og næringarefni. Skoðað er hvað liggur til grundvallar þeim ráðleggingum og hvaða ávinning hægt er að ná með því að fylgja þeim. Í áfanganum er farið í orkuþörf og næringarefnaþörf líkamans og ráðlagða dagskammta. Einnig er fjallað er um hreyfingu, holdafar og meltingu. Farið er í mataræði og fjallað um máltíðaskipan, skammtastærðir, fjölbreytni, fæðuflokka og mikilvægi hvers fæðuflokks. Næring er skoðuð m.a. orkuefnin, vítamín, steinefni og önnur efni.

Þjóðarmorð og þjóðernishreinsanir 

Stutt heiti: SAGA3ÞM05
Undanfari: SAGA2MÍ05
Í áfanganum verður valdir atburðir úr mannkynssögunni skoðaðir út frá skilgreiningunni þjóðarmorð, þjóðernishreinsanir og/eða ofsóknir. Áherslan verður á þátt opinberra aðila og ráðamanna í tengslum við slíka voðaatburði. Refsingar og nútímastríðsglæpadómstólar verða einnig til umfjöllunar og hlutverk þeirra skoðað. Nemendur eiga að kynna sér ýmis þjóðarmorð og voðaverk sem framin hafa verið á rúmum hundrað árum, einkum af opinberum aðilum eða ríkisstjórnum.

Inngangur að sálfræði

Stutt heiti: SÁLF2IS05
Áfanginn er byrjunaráfangi í sálfræði. Fræðigreinin sálfræði er kynnt fyrir nemendum, upphaf hennar og þróun. Helstu kenningar og fræðimenn sálfræðinnar eru skoðaðar. Rannsóknaraðferðir sem notaðar eru í sálfræði eru kynntar fyrir nemendum og þeir vinna verkefni þar sem þeir spreyta sig á vísindalegum vinnubrögðum sálfræðinnar. Grunnhugtök og sálfræðistefnur eru kynntar og sérstaklega er komið inn á námssálarfræðina og nemendur læra um mismunandi tegundir náms og minnisaðferðir. Sérstaklega er fjallað um samspil á milli hugsunar, hegðunar og tilfinninga. Sjálfsmynd og mannleg samskipti eru skoðuð og aðferðir sálfræðinnar skoðaðar.

Þroskasálfræði

Stutt heiti: SÁLF3ÞR05
Undanfari: SÁLF2IS05
Teknar verða fyrir helstu kenningar, viðfangsefni og rannsóknaraðferðir þroskasálfræðinnar. Nemendur læra um þroska mannsins frá frjóvgun og fram á fullorðinsár, einkum líkamsþroska, vitsmunaþroska, persónuleikaþroska og tilfinningaþroska. Byggt er á því sem nemendur hafa áður lært um sögu og sjónarmið sálfræðinnar, rannsóknaraðferðir og nám. Rætt verður um helstu álitamál þroskasálfræðinnar, svo sem erfðir og umhverfi, og stigskiptan og samfelldan þroska. Skoðuð verða mótunaráhrif fjölskyldunnar, auk frávikshegðunar og ýmsan vanda barna og unglinga. Nemendur fá þjálfun í að lesa rannsóknarskýrslu í þroskasálfræði.

Skyndihjálp

Stutt heiti: SKYN1SK01
12 klukkustunda námskeið í skyndihjálp, kennt þrjá eftirmiðdaga. Áfanginn er eingöngu kenndur í dagskóla. 

Inngangur að forritun

Stutt heiti: TÖLF2TF05
Farið er lauslega yfir sögu forritunar, uppbyggingu tölvu og helstu stýrikerfi. Farið er í undirstöðuatriði forritunar og lausnir einfaldra forritunarverkefna í hlutbundnu forritunarmáli, t.d. Python og Pygame eða Java. Áfanginn getur hentað nemendum á öllum brautum. Helstu hugtök: Uppbygging tölvu, hugbúnaður og vélbúnaður, breytur, virkjar, fylki, heiltölur, kommutölur, gildissvið (scope), slembitölur, strengir, listar, grafík, föll, stafasett, tvíundar-, tuga- og sextándaform, búlskar segðir og skilyrðissetningar, lykkjur, inntak og úttak í textabundnum notendaskilum, athugasemdir röðun, prófun og villuleit.

Kynfræðsla, kynheilbrigði og samskipti

Stutt heiti: KYNF1KS02
Í áfanganum verður farið yfir vítt svið kynfræðslu sem fer inn á svið sjálfsmyndar, samfélags, kynlífs og kynverundar. Nemendur fá öruggt rými til að rækta sjálfsþekkingu og fræðast um kynverundina og kynferðisleg og/eða rómantísk samskipti. Jafnréttis- og kynjafræði er fléttað inn í alla námsþætti og við skoðum hvernig tilfinningar, sjálfsmynd, félagsmótun og samskipti geta haft áhrif á væntingar og mörk. Áfanginn er nemendamiðaður og hvert þema valið í samstarfi við kennara út frá forþekkingu nemenda og markmiðum áfangans. Stuðst verður við kennarahandbókina Kynheilbrigði og vellíðan ungs fólks sem kom út 2023.