19. desember útskrifuðust 20 nemendur frá Menntaskólanum á Ísafirði. 13 nemendur útskrifuðust af opinni stúdentsbraut, tveir nemendur úr stálsmíði, þrír sem sjúkraliðar, einn af sjúkraliðabrú og tveir útskrifuðust með stúdentspróf af fagbraut.
Hulda Sigríður Friðfinnsdóttir hlaut verðlaun Menntaskólans á Ísafirði fyrir hæstu meðaleinkunn við útskriftina. Sigrún Aðalheiður Aradóttir hlaut verðlaun Menntaskólans á Ísafirði fyrir góðan námsárangur í umhverfis- og átthagafræði og einnig verðlaun fyrir góðan námsárangur í íslensku og íslenskum bókmenntum sem gefin voru af Sigurði Óla Rúnarssyni til minningar um Ölmu Guðrúnu Frímannsdóttur. Tanja Kristín Ragnarsdóttir hlaut verðlaun fyrir góðan námsárangur í dönsku sem gefin voru af danska sendiráðinu á Íslandi.
Við athöfnina fengu sjúkraliðanemendur rós og góðar kveðjur frá Sjúkraliðafélagi Vestfjarða og stálsmiðir fengu gjöf frá Járniðnaðarmannafélagi Ísafjarðar. Skólinn þakkar gefendum gjafa og verðlauna fyrir hlýhuginn.
Við óskum útskriftarnemum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í framtíðinni.