Í dag, 15. desember, eru 40 ár liðin frá útskrift fyrstu stúdentanna úr öldungadeild við Menntaskólinn á Ísafirði. Þennan dag var haldin hátíðleg athöfn í bókasafni skólans þar sem sjö konur voru brautskráðar með stúdentspróf úr öldungadeildinni. Þrjár þeirra komu frá Bolungarvík og við brautskráningarathöfnina var sérstaklega vikið að þeirri elju sem þær sýndu með því að sækja nám á kvöldin yfir erfiða vetrartíma. Við óskum eftirlifandi meðlimum hópsins til hamingju með tímamótin.
Öldungadeildin var stofnuð haustið 1981 og hófst kennsla í september í húsnæði skólans við Aðalstræti. Í upphafi skráðu sig 26 nemendur í deildina. Kennsla var að mestu í höndum kennara skólans og voru helstu greinar íslenska, danska, enska og stærðfræði.
Saga fyrstu öldungadeildarinnar er mikilvægur hluti af sögu skólans. Fyrsti öldungadeildarhópurinn ruddi brautina fyrir fullorðna nemendur og er enn í dag öflug áminning um gildi aðgengis að námi fyrir alla. Nám hefur ekkert aldurstakmark og það er aldrei of seint að hefja nám.
Á myndinni má sjá konurnar 7 sem útskrifuðust þennan dag fyrir 40 árum. Þær eru Anna Lóa Guðmundsdóttir, Svava Oddný Ásgeirsdóttir, Guðrún Stefánsdóttir, Agnes Karlsdóttir, Guðlaug Elíasdóttir, Kristín Gunnarsdóttir og Sigríður Rósa Símonardóttir. Myndin er tekin vorið 1987 þegar Sverrir Hestnes útskrifaðist úr öldungadeildinni en auk þeirra eru Björn Teitsson skólameistari og Bára Einarsdóttir sem útskrifaðist vorið 1986.