Laugardaginn 24. maí voru 77 nemendur brautskráðir frá skólanum af 14 námsbrautum. Brautskráningin fór fram við hátíðlega athöfn í Ísafjarðarkirkju. Útskriftarnemar, starfsfólk skólans, afmælisárgangar og aðrir gestir voru viðstödd athöfnina og sá Viðburðarstofa Vestfjarða um að streyma henni. Löng hefð er fyrir útskriftarfagnaði að kvöldi brautskráningardags með útskriftarnemum, fjölskyldum þeirra og afmælisárgöngum og í ár voru það um 330 manns sem fögnuðu saman í íþróttahúsinu á Torfnesi.
Af útskriftarnemum voru 40 dagskólanemendur, 4 dreifnámsnemendur og 16 nemendur í fjarnámi með Menntaskólann á Ísafirði sem heimaskóla.
Fimm nemendur útskrifuðust af lista- og nýsköpunarbraut, þrír nemendur af rafvirkjabraut, einn nemandi af rafvirkjabraut, íþróttasviði, fjórir nemendur af sjúkraliðabraut, einn nemandi af skipstjórnarbraut B, sex nemendur af stálsmíðabraut, tveir nemendur af stálsmíðabraut, íþróttasviði, fimm nemendur af vélstjórnarbraut A, einn nemandi af vélstjórnarbraut A, íþróttasviði. 45 nemendur luku stúdentsprófi. Tveir af félagsvísindabraut, sex af náttúruvísindabraut, einn af náttúruvísindabraut, íþróttasviði, 24 nemendur af opinni stúdentsbraut, einn nemandi af opinni stúdentsbraut, íþróttasviði og 11 nemendur með stúdentspróf af fagbraut.
Fjölmörg verðlaun voru afhent fyrir góðan námsárangur og að vanda setti tónlistarflutningur hátíðlegan svip á athöfnina.
Dúx Menntaskólans á Ísafirði árið 2026 er Bríet María Ásgrímsdóttir stúdent af opinni stúdentsbraut, íþróttasviði, með meðaleinkunnina 9,28. Hún hlaut verðlaun fyrir hæstu meðaleinkunn á stúdentsprófi sem gefin eru af Aldarafmælissjóði Ísafjarðarbæjar. Semidúx skólans með næsthæstu meðaleinkunn við útskrift 2026 er Berglind Björk Sveinsdóttir rafvirkjanemi með meðaleinkunnina 8,77 og hlaut hún verðlaun til minningar um Guðbjart Guðbjartsson sem gefin eru af Ragnheiði Hákonardóttur, Guðbjarti Ásgeirssyni og fjölskyldu, fyrir framúrskarandi námsárangur.
Öllum útskriftarnemum er óskað innilega til hamingju með áfangann og gæfu og gengis í framtíðinni.