04.12.2012
Á önninni sem nú er senn liðin hefur verið tekið upp á þeirri nýjung að nemendur í áfanganum ENS503 bjóða meistaranámsnemum hjá Háskólasetri Vestfjarða í heimsókn til sín og kynna fyrir þeim Vestfirðina í máli og myndum...
01.12.2012
Próftafla haustannar er nú aðgengileg í INNU fyrir hvern og einn nemanda. Próftöfluna má einnig skoða hér í heild sinni.Verkleg próf eru auglýst sérstaklega hjá hverjum kennara.
26.11.2012
Umsóknarfrestur um nám í skólann á vorönn í gegnum Menntagátt er nú liðinn. Þeir sem hafa áhuga á að stunda nám við skólann á vorönn geta þó enn sent inn umsóknir hér í gegnum heimasíðuna. Smellið hér til að fylla út ...
20.11.2012
Skólinn auglýsir eftir umsækjendum um námsstyrk úr sjóði Elínar Þorláksdóttur og Benediktss Bjarnasonar. Í ráði er að úthluta nú í vetur allt að fjórum styrkjum að upphæð kr. 75.000. Skriflegum umsóknum skal skila til skrif...
20.11.2012
Í síðustu viku kom Ingvar Sigurgeirsson, fyrrum prófessor við
HÍ í heimsókn í skólann og var með námskeið fyrir kennara skólans um námsmat.
Menntaskólinn á Ísafirði hefur í tengslum við nýju framhaldsskólalögin lagt
...
17.11.2012
Undankeppni MÍ fyrir söngkeppni framhaldsskólanna var haldin í gærkvöldi þrátt fyrir hríðarbyl og ófærð. Keppnin tókst í alla staði vel og umgerðin var að vanda glæsileg, en mikill undirbúningur liggur þar að baki. Fólk lét...
08.11.2012
Í fundartíma í dag verður kynning á vegum meistaranema í haf- og strandsvæðastjórnun hjá Háskólasetri Vestfjarða. Kynningin verður í stofu 17 og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
07.11.2012
Þann 8. nóvember er baráttudagur gegn einelti að frumkvæði verkefnisstjórnar um aðgerðir gegn einelti. Þetta er í annað sinn sem þessi dagur er helgaður baráttu gegn einelti hér á landi. Þjóðin er hvött til að standa saman ge...
02.11.2012
Í dag er síðasti dagurinn sem nemendur í skólanum hafa til að skrá sig í áfanga fyrir komandi vorönn. Námsráðgjafar og áfangastjóri aðstoða við valið til kl. 15 í dag.
24.10.2012
Opnað hefur verið fyrir val fyrir næstu önn. Í fundartíma á morgun fimmtudag eiga nemendur sem eru yngri en 18 ára að hitta umsjónarkennara sína og velja sér áfanga fyrir komandi vorönn. Eldri nemendur geta leitað til námsráðgja...