01.12.2015
Kæri nemandi! Ertu búinn að skila bókum á bókasafnið? Síðasti skiladagur á haustönn er 11. des. nk. Bókasafnið verður að sjálfsögðu opið á námsmatsdögum!
24.11.2015
Sameiginlegt innritunartímabil framhaldsskóla fyrir nám á vorönn 2016 er dagana 1.-30. nóvember. Sótt er um á Menntagátt þar sem finna má leiðbeiningar um innritun. Upplýsingar um nám í MÍ má finna hér.
20.11.2015
Búið er að birta próftöflu haustannar. Námsmatsdagar haustannar eru frá 14. - 18. desember. Dagana 14. - 16. desember eru prófadagar, 17. desember verða endurtektar og sjúkrapróf og föstudaginn 18. desember verður prófsýning milli k...
18.11.2015
Í fundartímanum á morgun verða þeir Gunnar og Þórarinn í Fab Lab með áhugaverða kynningu á Fab Lab í MÍ. Kynningin fer fram í fyrirlestrarsalnum og hvetjum við nemendur til að mæta og kynna sér hvaða möguleikar Fab Lab gefa í...
17.11.2015
Í morgun kom japanskur sendiráðunautur, hr. Tatsukuni Uchida í heimsókn í MÍ í fylgd Birnu Jónasdóttur hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða og fyrrum nemanda MÍ. Hr. Uchida hélt stuttan fyrirlestur um Japan fyrir tvo nemendahópa o...
16.11.2015
Í dag 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar er dagur íslenskrar tungu. Var hann haldinn hátíðlegur í MÍ með viðamikilli dagskrá á sal í umsjón íslenskukennaranna Emils Inga Emilssonar og Sólrúnar Geirsdóttur.
13.11.2015
Mikið erum við í MÍ stolt af hæfileikaríkum nemendum okkar sem stóðu sig frábærlega öll með tölu í kvöld, keppendur, húshljómsveitin og aðrir sem gerðu söngkeppnina að veruleika. Söngatriðin voru alls 10 og stóðu flytjendu...
13.11.2015
Söngkeppni Nemendafélags Menntaskólans á Ísafirði verður haldi í Edinborgarhúsinu í kvöld, föstudaginn 13. nóvember. Húsið opnar kl. 19:30 og keppnin byrjar kl 20:00. Aðgangseyrir er 1.000 kr. fyrir NMÍ og eldri borgara en 1.500 k...
10.11.2015
Í síðustu viku komu þrír málmiðnnemar frá EUC Lillebælt-skólanum í Danmörku til þriggja vikna dvalar á Ísafirði. Nemarnir þrír, Jonas, Morten og Rasmus, voru fyrstu vikuna hér í skólanum en seinni tvær vikurnar munu þeir vin...
05.11.2015
Mjög mikilvægt er að nemendur fari reglulega inn á Moodle og fylgist með því sem þar er að gerast. Við viljum benda nemendum okkar á að hægt er að nálgast Moodle í snjallsímavænu umhverfi og má fá alla leiðbeiningar um það h...