Árlegt kaffi útskriftarefna MÍ í dag

Árlegt útskriftarkaffi fór fram í Menntaskólanum á Ísafirði í dag þar sem útskriftarefni ársins buðu kennurum og starfsfólki skólans í veglegt kaffihlaðborð. Útskriftarkaffið hefur um árabil verið mikilvæg hefð í skólastarfinu og markar ávallt lok voranna. Útskriftarefnin höfðu undirbúið fjölbreyttar og glæsilegar kræsingar sem prýddu kaffiborðin og vöktu mikla lukku meðal gesta.

Í upphafi útskriftarkaffisins ávarpaði Heiðrún Tryggvadóttir skólameistari viðstadda og sagði að þessi árgangur hefði sérstaka merkingu fyrir sig persónulega þar sem þetta væri fyrsti innritaði hópurinn sem hún innritaði eftir að hún varð settur skólameistari við skólann. Hún vonaði að skólaganga þeirra í MÍ ætti eftir að reynast þeim vel í áframhaldandi námi og störfum og hefði aukið hugrekki þeirra til að þora. Að þora væri eitt það mikilvægasta í lífinu.

Á morgun er svo dimmision og laugardaginn 23. maí munu 62 nemendur útskrifast frá skólanum. Við óskum útskriftarefnum góðs gengis á lokaspretti annarinnar.