Ársskýrsla Fablab á Ísafirði 2025

Fab Lab Ísafjörður hefur gefið út ársskýrslu sína fyrir árið 2025 þar sem farið er yfir fjölbreytta starfsemi smiðjunnar á árinu. Skýrslan dregur fram samstarf við skóla og samfélag, aukna þátttöku almennings, nýsköpunarverkefni, námskeiðahald og uppbyggingu á tækjabúnaði smiðjunnar.

Á meðal þess sem fjallað er um eru samstarfsverkefni við grunnskóla og Menntaskólann á Ísafirði, þátttaka í Fab Academy, opnir tímar fyrir almenning, Reddingarkaffi og fjölbreytt frumkvöðla- og þróunarverkefni. Þá kemur fram að alls voru skráðar 2.506 heimsóknir í smiðjuna á árinu 2025.

Í skýrslunni er einnig farið yfir rekstur smiðjunnar, nýjan tækjakost og framtíðarsýn fyrir árið 2026 þar sem áfram verður lögð áhersla á sköpun, tæknimenntun og samfélagslega nýsköpun á Vestfjörðum.

Nálgast má ársskýrsluna í heild sinni hér.