Október er bleikur mánuður og í MÍ viljum við sýna stuðning okkar við konur sem greinst hafa með krabbamein. Skólinn hefur verið lýstur upp með bleiku ljósi og á Bleika deginum var starfsfólk og nemendur hvattir til að klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma.
Bleikt pálínuboð setti svip á daginn og starfsfólk kom saman í hefðbundna hópmyndatöku. Hefð hefur skapast fyrir því að mynda ýmis tákn eða stafi á þessum degi. Að þessu sinni myndaði starfsfólkið stafinn H fyrir hana Hildi okkar, sem stendur nú í baráttunni.
Með þessari kveðju sendum við Hildi hlýju og stuðning og viljum sýna henni og öllum konum sem greinst hafa með krabbamein samstöðu. 💗