Heiðrún,, skólameistari, Kristján Hrafn, formaður NMÍ og Jóhanna Ósk, bæjarstjóri Bolungarvíkur.
Bolungarvíkurkaupstaður hefur fært Nemendafélagi Menntaskólans á Ísafirði (NMÍ) hjartastuðtæki að gjöf. Jóhanna Ósk Halldórsdóttir, bæjarstjóri Bolungarvíkur, heimsótti skólann í morgun og afhenti tækið. Kristján Hrafn, formaður NMÍ, tók við því og kom á framfæri þakklæti nemendafélagsins fyrir þessa veglegu gjöf.
Heiðrún, skólameistari MÍ, sagði alltaf ánægjulegt þegar sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar vildu styrkja skólann með einhverjum hætti. Hjartastuðtækið væri vegleg gjöf sem skólasamfélagið væri afar þakklátt fyrir.
Tækið er af gerðinni Amoul i5 og er hálfsjálfvirkt hjartastuðtæki með íslenskum raddleiðbeiningum og skjá sem sýnir myndrænar leiðbeiningar. Það greinir hjartslátt og metur hvort þörf sé á rafstuði. Ef svo er leiðbeinir það notandanum að ýta á stuðhnapp. Gjöfin eykur því viðbúnað skólans við hjartastoppi og getur skipt sköpum þegar hver sekúnda telur.