Brautskráning á laugardaginn

 Brautskráningarathöfn fer fram í Ísafjarðarkirkju kl. 13:00 og verður streymt frá athöfninni. Við athöfnina munu fulltrúar 20 og 50 ára nemenda flytja ávörp. Að kvöldi útskriftardags verður að venju útskriftarfögnuður í íþróttahúsinu á Torfnesi þar sem útskriftarnemendur og fjölskyldur þeirra, afmælisárgangar og starfsfólk skólans koma saman.

HÉR er hlekkur á streymið.