Næstkomandi föstudag, þann 19. Desember verður brautskráning frá Menntaskólanum á Ísafirði. Athöfnin fer fram í Ísafjarðarkirkju og hefst klukkan 15:00.
Alls munu 20 nemendur útskrifast að þessu sinni og er hópurinn bæði öflugur og fjölbreyttur. Stærsti hlutinn, eða 13 nemendur, útskrifast af opinni stúdentsbraut. Þá er ánægjulegt að sjá áframhaldandi grósku í iðn- og verknámi en tveir nemendur útskrifast úr stálsmíði, þrír útskrifast sem sjúkraliðar og einn lýkur námi af sjúkraliðabrú. Þá ljúka tveir nemendur stúdentsprófi af fagbraut.
Brautskráningarnar eru í raun 21, en það skýrist af því að einn nemandinn landar tveimur titlum í einu, en sá hinn sami útskrifast bæði úr stálsmíði og með stúdentspróf af fagbraut.
Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt eða búa fjarri Ísafirði gefst tækifæri til að fylgjast með athöfninni í beinni útsendingu. Streymið má nálgast á YouTube rásinni hér að neðan:
Smelltu hér til að horfa á útskriftina
Við óskum útskriftarnemum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í framtíðinni.