Við hátíðarhöldin í Bolungarvík í gær, á 17. júní, flutti dúx Menntaskólans á Ísafirði hátíðarræðu.
Dúx MÍ við brautskráningu á dögunum með meðaleinkunnina 9,28 er Bríet María Ásgrímsdóttir stúdent af opinni stúdentsbraut. Bríet María hlaut fern verðlaun fyrir góðan námsárangur í íslensku, félags- og hugvísindagreinum, erlendum tungumálum og fyrir góðan árangur og ástundun á íþróttasviði. Bríet María flytur brátt til Akureyrar þar sem hún mun hefja nám í sálfræði við Háskólann á Akureyri.
Semidúx skólans með einkunnina 8,77 er Berglind Björk Sveinsdóttir sem var að ljúka námi í rafvirkjun. Til hamingju báðar.

