Nemendur í grunnnámi rafiðna fengu nýverið veglega gjöf þegar Rafmennt afhenti þeim vinnubuxur til notkunar í náminu. Nemendur tóku gjöfinni fagnandi og voru himinlifandi með stuðninginn.
Rafmennt er öflugt þekkingarfyrirtæki sem sinnir fræðslu og þjónustu fyrir raf- og tækniiðnaðinn á Íslandi, meðal annars með endurmenntunarnámskeiðum, fagnámi, rafbók.is og umsjón með raunfærnimati og sveinsprófum.
MÍ þakkar Rafmennt kærlega fyrir að huga að nemendum skólans. Framtaksemi sem þessi skiptir miklu máli og styður vel við nám og starfsþróun ungs fólks í rafiðngreinum.