Í kvöld klukkan 20:00 frumsýnir Leikfélag MÍ hið sígilda leikrit Rómeó og Júlía eftir William Shakespeare. Uppsetningin er með nútímatilvísunum og er í leikstjórn Birgittu Birgisdóttur. Undanfarnar vikur hafa nemendur skólans lagt hart að sér við undirbúning sýningarinnar. Æfingar hafa staðið yfir af krafti og mikil vinna farið í farið í bæði leikæfingar og allt það annað sem fylgir uppsetningu sem þessari. ,Ljóst er að metnaður og samvinna nemenda hefur skilað sér í vandaðri sýningu.
Mikil tilhlökkun ríkir innan skólans að sjá lokaafraksturinn á sviði. Rómeó og Júlía er eitt þekktasta verk Shakespeares og fjallar um ást, örlög og átök, þemu sem eiga enn vel við í dag.
Uppselt er á frumsýninguna en framundan eru 7 sýningar. Sýnt er í Edinborgarhúsinu. Miðasala er á www.midix.is
Við hvetjum alla áhugasama til að mæta á sýningu og styðja við skapandi starf nemenda.
Sýningar:
sýning 2 - 21.03 kl 20:00
sýning 3 - 22.03 kl 16:00
sýning 4 - 22.03 kl 20:00
sýning 5 - 24.03 kl 20:00
sýning 6 - 25.03 kl 20:00
sýning 7 - 26.03 kl 20:00
sýning 8 - 27.03 kl 20.00