FRVF með áherslu á eflingu rafiðnaðarnáms við MÍ

Sævar Óskarsson. Mynd tekin af sart.is.
Sævar Óskarsson. Mynd tekin af sart.is.

Á aðalfundi Félags rafverktaka á Vestfjörðum, sem haldinn var nýverið á Ísafirði, var lögð sérstök áhersla á mikilvægi menntamála og uppbyggingu starfsnáms á svæðinu. Þar var samþykkt tillaga um að styðja við rafiðnaðardeild Menntaskólans á Ísafirði með kaupum á sérhæfðum kennslubúnaði.

Formaður félagsins, Sævar Óskarsson, lagði fram tillögu þess efnis að nýta fjármuni úr sjóðum félagsins til að fjárfesta í búnaði sem nýtist beint í kennslu rafiðngreina við skólann. Markmið verkefnisins er að styrkja menntun framtíðar rafiðnaðarmanna, bæta kennsluaðstöðu og tryggja að námið haldist í takt við þróun og kröfur atvinnulífsins.

Tillagan var samþykkt einróma á fundinum og samhliða því verður leitað eftir samstarfi við fyrirtæki á Vestfjörðum til að fjármagna verkefnið frekar. Með þessu er stefnt að því að byggja upp öflugt og sjálfbært samstarf milli skóla og atvinnulífs sem skilar sér í auknum gæðum náms og sterkari stoðum fyrir rafiðnað á svæðinu.

Menntaskólinn á Ísafirði fagnar þessum stuðningi og lítur á hann sem mikilvægt skref í áframhaldandi eflingu starfsnáms við skólann og tengingu þess við þarfir samfélagsins og atvinnulífs á Vestfjörðum.

Fréttina á sart.is (Samtök rafverktaka) má lesa í heild sinni hér.