Fyrstu rafvirkjarnir útskrifast frá Menntaskólanum á Ísafirði

Á myndinni er Elvar Ari Hagalínsson kennari rafmagnsgreina með nýútskrifuðum rafvirkjum
Á myndinni er Elvar Ari Hagalínsson kennari rafmagnsgreina með nýútskrifuðum rafvirkjum

Við brautskráningu þann 23. maí sl. voru gleðileg tímamót þegar fyrstu rafvirkjarnir útskrifuðust frá skólanum eftir sameiningu Menntaskólans á Ísafirði og Iðnskóla Ísafjarðar.Fjórir rafvirkjar voru þá útskrifaðir. Berglind Björk Sveinsdóttir hlaut verðlaun við brautskráningarathöfnina fyrir góðan námsárangur en Berglind Björk var einnig semidúx skólans með meðaleinkunnina 8,77.

Útskriftin markar mikilvægan áfanga í uppbyggingu starfs- og verknáms við skólann og er staðfesting á því öfluga starfi sem unnið hefur verið að undanfarin ár. Rafvirkjanemarnir fjórir hafa lokið fjölbreyttu og krefjandi námi sem undirbýr þá vel fyrir störf í rafiðnaði og hafa nú þegar hafið störf hjá fyrirtækjum á svæðinu.

Við þetta tækifæri vill Menntaskólinn á Ísafirði færa öllum þeim sem hafa stutt við uppbyggingu námsins innilegar þakkir. Sérstakar þakkir fá þeir velunnarar námsins sem hafa styrkt skólann með gjöfum og þannig lagt sitt af mörkum til að efla kennslubúnað. Jafnframt vill skólinn þakka Rafmennt fyrir dýrmætan stuðning og samstarf.

Menntaskólinn á Ísafirði óskar nýútskrifuðum rafvirkjum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í starfi og námi í framtíðinni. Útskrift þeirra er mikilvægur áfangi fyrir skólann, atvinnulífið á Vestfjörðum og starfsmenntun á svæðinu.