Gefum íslensku séns á Hlíf

Nemendur sem stunda nám í íslensku sem öðru máli hafa reglulega í vetur skipulagt hittinga undir yfirskriftinni Gefum íslensku séns í MÍ. Markmiðið er að fólk sem lærir málið fái stuðning og skilning þeirra sem hafa vald á íslensku auk þess sem því er ætlað að vekja samfélagið til vitundar um það hvernig við getum öll stuðlað að framförum fólks í íslensku.

Í dag var síðasti tíminn á önninni og hópurinn kíkti yfir til nágranna okkar á Hlíf í spjall. Það var létt yfir mannskapnum á síðasta kennsludegi annarinnar og eins og sjá má á meðfylgjandi mynd endaði samveran með gítarspili og söng. Samstarf við íbúa á Hlíf í þessu verkefni hefur gefist einstaklega vel og verður vonandi framhald á því á næsta skólaári. Við þökkum öllum sem hafa tekið þátt í þessu verkefni í vetur.