Menntaskólinn á Ísafirði fékk góða gesti frá Spáni í vikunni þegar Isabel og Laura, kennarar við IES Javier García Téllez í Cáceres, heimsóttu skólann á vegum Erasmus+.
Nadja, kennari við MÍ, tók á móti þeim og sýndi þeim skólann og var þeim til halds og traust meðan á dvölinni stóð. Þær dvöldu á Ísafirði á miðvikudag og fimmtudag og kynntu sér starfsemi skólans, meðal annars skipulag og framkvæmd sjúkraliðanámsins við MÍ. Heimsóknin gaf jafnframt tækifæri til að miðla reynslu og ræða ólíkar leiðir í námi og kennslu.
Isabel og Laura lögðu af stað akandi suður í morgun eftir ánægjulega tveggja daga heimsókn. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og óskum þeim góðrar heimferðar.