Starfsfólk Menntaskólans á Ísafirði tók virkan þátt í Gulum degi og mætti að sjálfsögðu í gulum fötum. Á kaffistofunni var boðið upp á gult nammi sem setti skemmtilegan svip á daginn.
Markmiðið með Gulum degi er að vekja athygli á geðheilbrigði og sjálfsvígsforvörnum. Þennan dag klæðumst við gulu, skreytum með gulu, lýsum með gulu og njótum gulra veitinga. Einnig er hvatt til þess að fólk taki myndir af stemningunni og deili á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #gulurseptember og merki við @gulurseptember.
Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga er 10. september.
Allir eru hvattir til að taka þátt og sýna með því stuðning við mikilvægt málefni.