Þrír nemendur sem stundað hafa hársnyrtinám við Menntaskólann á Ísafirði voru meðal þátttakenda á útskriftarsýningu hársnyrtinema sem fram fór á Gamla Nasa í Reykjavík 28. október. Þetta voru þær Dagný Rut Davíðsdóttir, Lára Björg Björvinsdóttir og Sara Katrín Heiðarsdóttir. Af sextán útskriftarnemum á sýningunni voru því þrjár úr röðum MÍ.
Yfirskrift sýningarinnar var „Ævintýri“ og sóttu nemendur innblástur í ólíka ævintýraheima. Dagný Rut vann út frá Marvel-heiminum, Lára Björg sótti hugmyndir í Litlu hafmeyjuna og Sara Katrín valdi álfa sem þema. Útkoman var fjölbreytt og hugmyndarík, þar sem litir, form og útfærslur í hárgreiðslu léku stórt hlutverk í að skapa heildstæða ásýnd fyrirsætanna. Tengsl MÍ við sýninguna einskorðuðust þó ekki við útskriftarnemana þrjá. Linda Fanney Bragadóttir, nemandi á fimmtu önn í hársnyrtinámi, tók einnig þátt sem aðstoðarmaður við sýninguna.
Það er ánægjulegt að sjá nemendur nýta grunninn úr náminu við MÍ, halda áfram á sinni braut og sýna afrakstur vinnu sinnar á þessum vettvangi. Þátttaka þeirra er jafnframt hvatning fyrir þau sem nú stíga sín fyrstu skref í faginu.
MÍ óskar Dagnýju Rut, Láru Björgu og Söru Katrínu innilega til hamingju með áfangann og öllum fjórum með glæsilega þátttöku í sýningunni!
Dagný Rut - Þema: Marvel

Lára Björg - Þema: Litla hafmeyjan

Sara Katrín - Þema: Álfar
