Heimsókn starfsbrautar í Hornstrandastofu

Nemendur í náttúruvísindum á starfsbraut fóru ásamt kennara og stuðningsfulltrúum í fræðandi heimsókn á Hornstrandastofu þar sem Kristín Ósk Jónasdóttir, landvörður og sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, tók á móti hópnum. Þar fengu nemendur innsýn í náttúru og menningu Hornstranda, meðal annars líffræðilega fjölbreytni svæðisins, viðkvæm vistkerfi, hlutverk rándýra og ekki síst hina óþekku refi.

Sérstök áhersla var lögð á málefni hvítabjarna á Hornströndum og ræddar voru fjölbreyttar hliðar þess málaflokks. Gaman þótti að sjá ísbjörninn sem varðveittur er í gamla mjólkurkælinum í Björnsbúð og var jafnframt tilvalið tækifæri til að mynda Björn nemanda með birnunni í Hornstrandastofu.

Nemendur sýndu frábæran áhuga, komu fram af kurteisi og spurðu fjölmargra áhugaverðra spurninga. Voru þeir skólanum og kennurunum til mikils sóma.

Starfsbrautin hefur áður verið í tengslum við verkefni á Hornströndum. Í fyrra vor smíðuðu nemendur svokallaða vegpresta sem nú standa við gönguleiðir á svæðinu.

Að lokinni heimsókn var haldið aftur í skólann þar sem nemendur fengu piparkökur og mandarínur í tilefni annarloka og aðventu.