Innritun nýnema á haustönn 2026 lokið

Innritun nýnema í framhaldsskóla landsins er lokið. Alls innritast 77 nýnemar í skólann og er það 18,5% aukning frá innritun 2025. Við bjóðum alla nýnema velkomna í skólann og hlökkum til að hitta þá á nýnemadeginum þann 17. ágúst n.k. 

Allir nýir nemendur hafa nú fengið sendar helstu upplýsingar um skólann og skólastarfið. Á heimasíðu skólans er einnig að finna ýmsar nauðsynlegar upplýsingar.