Menntaskólinn á Ísafirði og Tækniskólinn sóttu á síðasta ári sameiginlega um styrk til samstarfs- og nýsköpunarstyrkja til íslenskunáms innflytjenda fyrir verkefnið Íslenskumót – tenging, tungumál og tækifæri. Verkefnið miðaði að því að efla íslenskukunnáttu, sjálfstraust og félagsleg tengsl nemenda á íslenskubrautum skólanna með samveru og fjölbreyttum verkefnum utan hefðbundins skólaumhverfis. Skólarnir hlutu veglegna styrk sem gerði skólunum möguleika á að skapa nemendum dýrmæt tækifæri til að kynnast, læra saman og styrkja stöðu sína í íslensku samfélagi.
Í síðustu viku hittust skólarnir tveir á íslenskumóti þegar nemendur og kennarar beggja skóla héldu að Laugum í Sælingsdal. Dalahótel var bækistöð hópsins og þar fór stór hluti dagskrárinnar fram frá miðvikudegi til föstudags.
Við komuna hittust nemendur skólanna og hófu að kynnast í gegnum hópefli áður en sest var að hádegisverði. Síðar um daginn var farið í heimsókn á Hóla Petting Farm. Þar fengu nemendur að skoða fjölbreyttan hóp dýra, meðal annars kindur, geitur, hænur og hana, svín og hesta. Talandi krummi var einnig meðal þeirra sem tóku á móti gestunum.
Þó veðrið væri ekki alveg með hópnum í liði og töluvert rigndi alla dagana kom það ekki að sök. Á fimmtudeginum fór dagskráin öll fram innandyra undir stjórn Lilju ??? frá KVAN. Frá klukkan níu um morguninn til fjögur síðdegis tóku nemendur þátt í fjölbreyttum leikjum, hópefli og verkefnum sem reyndu á íslenskukunnáttu, samvinnu og styrktu sjálfstraust. Nemendurnir þurftu að stíga vel út fyrir þægindarammann, leysa þrautir í sameiningu og fengu þannig tækifæri til að uppgötva eigin styrkleika og kynnast hvert öðru betur.
Að dagskrá lokinni gafst nemendum tími til að velja sér afþreyingu eftir áhuga og orku. Hægt var að fara í sund, í íþróttasal eða leiktækjasal, en einnig að slaka á uppi á herbergi eftir viðburðaríkan dag.
Ferðin gekk vonum framar. Nemendur tóku virkan þátt í dagskránni og æfðu sig mikið í að tala íslensku. Að mati kennara voru jákvæð áhrif samverunnar greinileg. Það veitti nemendum greinilega öryggi að hitta jafnaldra með svipaðan bakgrunn og reynslu, finna samkennd og takast á við ný verkefni saman.
Samstarf starfsfólks skólanna gekk einnig afar vel. Kennarar náðu vel saman og nýttu tækifærið til að skiptast á reynslusögum úr kennslu, ræða áskoranir og miðla hugmyndum. Ferðin varð þannig bæði vettvangur fyrir tengslamyndun nemenda og dýrmætt faglegt samtal milli skólanna.
Reynslan af þessu skemmtilega íslenskumóti minnir á hversu mikilvægt er að við sem samfélag styðjum við ungmenni sem eru að læra íslensku og finna sér stað í nýju samfélagi. Tungumálanám á sér ekki aðeins stað í kennslustofunni. Það þrífst líka í samtölum, leikjum og sameiginlegri reynslu, þar sem ungt fólk finnur að það tilheyrir hópnum og fær svigrúm til að vera það sjálft.




