Nemendur sem eru að ljúka námi samkvæmt nýrri námskrá á stúdentsbrautum taka allir áfanga sem heitir lokaverkefni. Í þeim áfanga vinna nemendur að stóru verkefni að eigin vali. Í ár er afrakstur lokaverkefnisáfangans einstaklega fjölbreytt efni og áhugavert. Nemendur hafa valið verkefnin af kostgæfni og sýna hvað í þeim býr.
Kynningarnar verða á fimmtudeginum 17. maí 2018. Fjallað verður um íþróttir, búninga og tísku, eðlis- og efnafræði, sögu, hagfræði, dýrafræði, félagsfræði og heilsu svo af mörgu er að taka. Þessi 27 verkefni samanstanda af 2 rannsóknarskýrslum, 2 myndböndum, 2 heimasíðum, 9 fræðiritgerðum og 12 heimildaritgerðum. Allir eru velkomnir á kynningarnar sem verða í stofu 17, sem er fyrirlestrarsalur Menntaskólans á Ísafirði.
Dagskráin er sem hér segir (með fyrirvara um breytingar):
| Kynningar 09:00-09:40 | |||
| 08:00 | Asmi á meðal íþróttafólks | ||
| 08:10 | Lyftingar- og matarprógramm | ||
| 08:20 | Íslenskir handboltaþjálfarar | ||
| 08:30 | Geta foreldrar haft áhrif á íþróttaiðkun barna? | ||
| 08:40 | Veganmismi og íþróttamenn | ||
| 08:50 | Íþróttir á Ísafirði | ||
| 09:00 | Ólympíuleikarnir | ||
| 09:10 | Sveindl á Ólympíuleikum, aðallega vetrarleikum | ||
| 09:20 | Þjóðbúningurinn minn | ||
| 09:30 | Tískan | ||
|
|||
| 10:00 | Hermitilgátan | ||
| 10:10 | Hvarftími málma | ||
| 10:20 | Takmarkaða afstæðiskenningin | ||
| 10:30 | Lögleg og ólögleg lyf | ||
| 10:40 | Jóhannes Lárus Lynge Jóhannsson | ||
| 10:50 | Útrýmingarbúðir nasista | ||
| 11:00 | Bitcoin og ragfjaldmiðlar | ||
| 11:10 | Snæugla | ||
| 11:20 | Hundar og umhirða þeirra | ||
| Kynningar 12:30-13:50 | |||
| 12:20 | Einhverfa og Asperger-heilkennið | ||
| 12:40 | Rant myndband | ||
| 12:50 | Sjálfsmynd íslenskra stúlkna | ||
| 13:00 | Samfélagsmiðlar og snjallsímar | ||
| 13:10 | Brjóstakrabbamein - allt sem þarf að vita | ||
| 13:20 | Mismunandi kynhneigðir | ||
| 13:30 | Kaffi | ||
| 13:40 | Snjóbretti og skíði | ||