Kynningar Menntaskólans á Ísafirði fyrir nemendur í 10. bekk á Vestfjörðum

Á myndinni má sjá Ernu námsráðgjafa, Mörthu áfanga- og fjarnámsstjóra ásamt Olgu Nadiu Mróz og Rakel…
Á myndinni má sjá Ernu námsráðgjafa, Mörthu áfanga- og fjarnámsstjóra ásamt Olgu Nadiu Mróz og Rakel Evu Ingólfsdóttur nemum á 1. ári, sem aðstoðuðu við kynninguna í Bolungarvík.

Fulltrúar Menntaskólans á Ísafirði heimsóttu nýverið Grunnskólann í Bolungarvík þar sem nemendum í 10. bekk var veitt heildstæð kynning á námsframboði, námsfyrirkomulagi og skólasamfélagi skólans.

Kynningin var hluti af markvissu kynningarstarfi fyrir nemendur í 10. bekk á Vestfjörðum, með það að markmiði að veita skýra yfirsýn yfir náms- og framtíðarmöguleika sem standa nemendum til boða við skólann.

Að kynningunum standa námsráðgjafi, stjórnendur og fulltrúar nemenda, sem miðla reynslu sinni af námi og skólastarfi. Með því er varpað ljósi á daglegt skólastarf, félagslíf og það stoðkerfi sem nemendum stendur til boða meðan á námi stendur.

Í næstu viku eru áformaðar kynningar í Grunnskólanum á Ísafirði, Grunnskólanum á Þingeyri, Grunnskólanum á Suðureyri og Grunnskólanum í Súðavík. Slíkar kynningarferðir eru fastur liður í starfi skólans og miða að því að jafna aðgengi nemenda á Vestfjörðum að upplýsingum um framhaldsnám. Á haustönn var skólinn jafnframt kynntur í Hólmavík, á Drangsnesi, Patreksfirði, Bíldudal og í Tálknafirði.

Í framhaldi af kynningarstarfinu verður opið hús í Menntaskólanum á Ísafirði 5. mars.