Mannvirkjaþing Samtaka iðnaðarins

Mannvirkjaþing Samtaka iðnaðarins var haldið í annað sinn í Iðunni í Vatnagörðum síðastliðinn fimmtudag og sóttu það um 160 gestir. Menntaskólinn á Ísafirði átti þar fulltrúa í Heiðrúnu Tryggvadóttur skólameistara, sem tók virkan þátt í umræðum um iðnmenntun, einu af lykilviðfangsefnum þingsins.

Á þinginu var í upphafi fjallað um mikilvægi uppbyggingar innviða fyrir viðnámsþrótt, varnir og öryggismál. Í framhaldinu gátu gestir valið milli tveggja málstofa, þar sem annars vegar var rætt um opinber innkaup og hins vegar áskoranir í iðnmenntun. Heiðrún sat í pallborði þeirrar málstofu ásamt fulltrúum úr atvinnulífi og öðrum skólameisturum, þar sem m.a. var rætt um hvernig efla megi tengsl skóla og fyrirtækja, aðgengi ungmenna að iðnnámi og mikilvægi þess að menntakerfið styðji betur við fjölbreyttar starfsleiðir.

Að auki voru á þinginu fjölmörg erindi um breyttar öryggisáskoranir, stöðu varnarmála, opinber innkaup og húsnæðisuppbyggingu. Mannvirkjaþing SI er orðið vettvangur þar sem menntastofnanir, stjórnvöld og atvinnulíf koma saman og ræða sameiginlegar áskoranir og var framlag Menntaskólans á Ísafirði þar mikilvægt.