Mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundur Ingi Kristinsson, kom í heimsókn í Menntaskólann á Ísafirði ásamt föruneyti mánudaginn 8. september. Tilefni heimsóknarinnar var að skoða aðstæður í skólanum sem því miður eru víða óviðunandi ekki síst fyrir verknámsnemendur. Kennsla í háriðngreinum og húsasmíði fer fram í kjallara undir heimavist skólans en þar eru húsnæði og aðbúnaður langt frá því að mæta þeim kröfum sem gerðar eru í dag. Í heimsókninni fékk ráðherra að sjá þessar aðstæður og ræða við starfsfólk skólans. Í heimsókninni fullvissaði ráðherra stjórnendur skólans um að nýtt verknámshúss myndi rísa eins fljótt og hægt væri.
Að lokinni skoðunarferð borðaði ráðherra hádegisverð með skólastjórnendum, skólanefnd og fulltrúum úr atvinnulífinu. Þar var rætt opinskátt um brýna þörf á byggingu nýs verknámshúss, fjármögnun til kaupa á nútímalegum tækjum til kennslu og rekstrarumhverfi skólans. Skólameistari, Heiðrún Tryggvadóttir, hélt einnig ítarlega kynningu fyrir gestina. Hún fór yfir helstu áskoranir sem skólinn stendur frammi fyrir, vaxandi nemendafjölda og núverandi aðstæður auk þess sem hún sýndi samanburð á fjármagni frá ríkinu til Menntaskólans á Ísafirði og annarra framhaldsskóla á landinu. Í máli starfsmanna ráðuneytisins og ráðherra kom fram mikill vilji til að styðja við uppbyggingu skólans. Áhersla var lögð á að nú væri komið að því að fylgja orðum eftir með aðgerðum og hefja nauðsynlega uppbyggingu. Við í MÍ erum þakklát ráðherra og starfsfólki hans fyrir góða og gagnlega heimsókn og horfum vongóð til framtíðar.