Menntaskólinn á Ísafirði fær nýjar saumavélar að gjöf

Menntaskólinn á Ísafirði fékk í dag tvær nýjar saumavélar að gjöf frá Kvenfélaginu Hlíf. Það var Anna Karen Kristjánsdóttir sem afhenti vélarnar fyrir hönd félagsins við formlega athöfn í skólanum.

Við afhendinguna tóku þær Drífa, kennari í listgreinum, og Heiðrún skólameistari á móti gjöfinni og þökkuðu fyrir þann mikilvæga stuðning sem felst í framlaginu. Um er að ræða Pfaff Ambition 610 saumavélar sem munu nýtast vel í kennslu, sérstaklega í fatahönnunaráföngum og öðrum skapandi greinum innan skólans.

Gjafabréf frá Kvenfélaginu Hlíf fylgdi með afhendingunni þar sem fram kemur að markmiðið sé að efla aðstöðu nemenda til sköpunar og styðja við verklega kennslu. Búnaðurinn er því mikill fengur fyrir skólann og mun án efa hafa jákvæð áhrif á nám og skapandi starf nemenda á komandi misserum.